18 júlí 2006

Önnur snilld, líka stolin og staðfærð......

Fólk er fífl......sungu Botnleðjumenn og forsvarsmenn olíufélaganna þriggja sönnuðu það.

Og þú ert svo sannarlega fífl ef
......þú hefur tekið þátt í ædol og sagðir "dómararnir vita bara ekkert í sinn haus, sanniði til, einn daginn verð ég stjarna" þegar þú dast út
...þú horfir á fúddbollers vævs, ell vörd eða mæl hæ
...þú ert strákur með eyrnalokk
...þú ert með forgjöf
...þú kaupir þér nýjan gjéessemm síma áður en sá gamli er ónýtur
...þú skrifar bakþanka aftan á fréttablaðið
...þú hefur æft júdó, karate eða einhverja af þessum furðulegu bardagalistum sem ég nenni ekki og kann ekki að stafsetja
...þú ert með hópblogg sem hefur það að markmiði að sýna og sanna fyrir umheiminum hvað þú og vinir þínir eru nú "ógisslega nettir og flippaðir" og hvað þið eruð svaðalegir á djamminu
...hópbloggið þitt hefur komist í djévaff, sirkus, hérognú, séðogheyrt and so on
......þú ert karlmaður og finnst það bara allt í lagi og meira að segja soldið kúl að drekka bríser, smirnoff æs og aðra drykki í þessum dúr - drykki sem bæ ðe vei eru framleiddir fyrir smástelpur
...þú talar iðulega um sjálfan þig í þriðju persónu
...þú setur greini fyrir aftan nafnið þitt
...þú skilur ekki "hvað er svona fyndið við þennan arthúr?"
...þú skilur ekki hvað er svona fyndið við baggalút
...þú hefur farið í djammferð til íbísa

Nákvæmlega.

Engin ummæli: