18 júlí 2006

Karlmenn vs. konur

Lesið þetta, verð að segja að það er nokkuð til í þessu.
Stal þessu frá Elvu Dröfn............

· Karlmenn hafa enga skoðun á gluggatjöldum.


· Þegar einhver kaupir sér nýjan bíl spyrja karlmenn um tegundina, konur vilja fá að vita hvernig hann er á litinn.


· Konur setja hluti við neðsta þrepið í stiganum til að fara með þá upp í næstu ferð. Karlmenn klofa yfir þá þangað til þeim er sagt að taka þá með sér upp.


· Karlmenn geta ekið bíl án þess að glápa á sjálfan sig í speglinum.


· Karlmenn vilja fá lófatak fyrir að taka úr uppþvottavélinni.


· Karlmenn geta sofið þótt hundurinn gelti, barnið gráti eða dyrabjallan hringi.


· Karlmenn geta ekki samtímis horft á sjónvarpið og talað við konu sína.


· Konur geta munað hvernig þær voru klæddar ákveðinn dag fyrir ári síðan, karlmenn muna ekki hvernig þeir voru klæddir í gær nema kíkja á fatahrúguna á gólfinu við rúmstokkinn.


· Karlmenn geta horft á heila kvikmynd án þess að spyrja: Hver er þetta? Hvað var að gerast? Hvað gerir þessi?


· Konur fara saman á klósettið. Karlmenn talast ekki við inni á salerninum.


· Konum er það meðfætt að taka hluti persónulega.


· Konur horfa á kynþokkafullan karlmann án þess að eftir því sé tekið, karlmenn glápa á fallegar konur og allir taka eftir því.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæbb!
Sammála þessu flestu :)
Annad: Hensongallarnir eru komnir, förum ad koma þeim út...
Kv. vigga