15 október 2006

Hlaupabóla og fleira

Skrýtin vika að baki.
Ungfrúin á heimilinu fékk hita á fimmtudaginn og á föstudaginn fóru að koma bólur = hlaupabólan er mætt á svæðið. Svo núna er hún útsteypt í þessum ófögnuði og ég sé fram á að vera amk hálfa vikuna heima með hana. Hún er hundfúl yfir þessu, missti af danskennslu, danssýningu, leikskólaheimsókn og textílmennt (það var aðalmálið). En vonandi nær hún sér sem fyrst.

Við fórum síðasta sunnudag í pönnsukaffi á Sölvabakka, það voru hreppaskil og við máttum bíða eftir fé úr Skagafirði. Alltaf gott að koma í kaffi á Bakkann.

Svo þurfti endilega að fara að snjóa á þriðjudaginn var en svo var nú snjórinn að mestu farinn um hádegi á miðvikudeginum. En reyndar er spáð slyddu þessa vikuna :-( Eins gott að við ákváðum að fara með síðustu sláturlömbin í dag. Anna Magga kom og sónaði í gær og pabbi og Tómas komu og aðstoðuðu, þar sem ég og sjúklingurinn fórum ekki neitt. Ljómandi gott að það er afstaðið.

Nú líður að sumarlokum og fyrsti vetrardagur er á laugardaginn næsta. Þá ætlum við í kvenfélaginu Heklu að bjóða okkur og fjölskyldum okkar í kaffi.

Svo er víst sláturgerð á föstudaginn, ef veður leyfir. Enda eins gott, öll lifrarpylsan búin og endalaust verið að panta hana í morgunmat. Ekki hægt að segja annað en að hér sé hollur morgunmatur :-)

Hér eru svo myndir af nýjustu frænkunni minni, henni litlu Áróru. Þær eru á Króknum núna um helgina en ég kemst ekki , vegna hlaupabólunnar.............

Jæja, viðburðir vikunnar hafa víst ekki verið fleiri..............................

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með hlaupabóluna:) Gætir þú sent mér smá smit í pósti? Hef nefnilega ekki fengið hana ennþá og bíð spennt ólíkt litlu frænku minni.

kv
Rósa

Heiðagella sagði...

vona að drottningunni batni hlaupabólan sem fyrst... enda óskemtilegt að missa af öllu fjörinu...
Biðjum annars að heilsa sauðfénu og öðru heimilisfólki....
Heiðagella og ungarnir, lítt hrifin af slátri

Nafnlaus sagði...

Hæ, ég er í háskólanámi og er á fullu í skriftarkennslu - það er verið að kenna mér að skrifa...
var að klára skrift 5A, búin að vera ógeðslega dugleg og fékk meira að segja broskall í bókina (ha ha ha) Mér finnst þetta ógeðsleg fyndið :) En okkur var bent á þessa frábæru síðu og ætla ég nú að leka henni áfram til þín
http://briem.ismennt.is/index.ice.htm ábyggilega eitthvað sem þið sem kunnið að skrifa getið notað ykkur.

Kv. Guðrún Elsa (er að fá skrift 7A á eftir veiiiii)

Dagný Rósa sagði...

Rósa: Verst að geta ekki sent þér ellugelluna svo þú smitist......

Heiða: Ertu búin að senda pakkann?

Guðrún: Kom að því að þú fengir að læra að skrifa hahahahaha. Takk fyrir ábendinguna, góð síða.