Hef svosem ekkert að segja þessa dagana, frekar en áður. Allt í ró og spekt á heimilinu, göngur afstaðnar, sundkennslu lokið og við tekur hversdagsleikinn. Hef yfirdrifið nóg á minni könnu þessa dagana...............
Í gær eignuðust Áróra Rós og Doddi litla stúlku, til hamingju frænka.
Svo má auðvitað ekki gleyma stórafmælinu á morgun hjá Sölvabakkabóndanum, hún verður þrítug, innilegar hamingjuóskir elsku Anna Magga.
Fór á Akureyri á laugardaginn að slæpast í búðum og fleira, smelltum okkur svo á Karíus og Baktus og satt að segja er þessi uppsetning mjög góð og prakkararnir fínir. Elín skemmti sér konunglega og ég líka. Á sunnudaginn fór Doddi í eftirleit og kom með nokkrar skjátur, við áttum nú reyndar 4 af þeim. Svo smelltum við okkur yfir í hina sveitina og fengum aðeins að smala með þeim. Svo auðvitað skellti ég mér á fjórhjólið og brunaði um allt, verð að fá mér eitt svona.
Jæja, hef ekki meira bull í bili...............................
27 september 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Takk Dagný mín fyrir afmæliskveðjuna.
Bestu kveðjur yfir ána
Anna Magga
Skrifa ummæli