Jæja, veðrið leikur við mann þessa dagana. Lárus var búinn að lofa þessu og hann stendur við það sem hann segir. Sundið gengur vel í þessari blíðu :-)
Erum búin að slátra um 100 lömbum og þau hafa komið þokkalega út í gerð og fitu, sem betur fer.... Annars er unnið á sláturhúsinu frá 7:30 á morgnana og Doddi er að koma heim um 19:00 og jafnvel seinna. Held að það eigi svo að slátra næstu þrjá laugardaga, svo mikil er ásóknin. Hvað er þetta eiginlega með SAH? Ekki gengur þetta svona vel á Króknum hjá KS.
Verð þá bara að fara kalllaus á Akureyri um helgina.
Fór ekki í réttir á sunnudaginn og er ekkert verri þrátt fyrir það............................
18 september 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Maður talar ekki um slátranir og ástkærann í sömu setningunni..
hehehe
Bið að heilsa í bæinn
Skrifa ummæli