Hér er ekkert að gerast annað en gangnastúss, rollusmalanir og fleira stress tengt því. Þetta er svona nett pirrandi en samt stundum gaman.
Fórum í Selnesrétt og Skarðarétt á laugardaginn, nokkuð gott. Svo fórum við í Tungurétt á sunnudaginn og það var bara ágætt. Held að heimtur séu nokkuð góðar eftir fyrstu smölun.
Sundkennslan byrjuð og heimasætan undir sér vel í sundi, finnst bara fínt að fara í sund. Margir mættu nú taka hana til fyrirmyndar.
Adios
12 september 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli