12 september 2006

Spá pæling

Hef aðeins verið að pæla í þessu síðustu daga. Hvað gerir það að verkum að maður nær árangri. Fann svo þetta á www.femin.is

Margir ná árangri mjög auðveldlega, aðrir þurfa að að hafa meira fyrir því.

1. Hvað dreymir þig um?
Ef þú óskar þess að ná árangri í lífinu, verður þú fyrst að skilgreina drauma þína. Ekki hvað öðrum finnst um þig, ekki hvað þú ”ættir” að gera, heldur hvað ÞÚ vilt gera í lífinu.

2. Settu þér markmið
Hvaða markmiði/markmiðum viltu ná? Hvenær ætlar þú að ná þeim, og hvers vegna? Það er mikilvægt að þú svarar þessum þremur spurningum áður en þú hefur leiðina að því að ná markmiðum þínum.

3. Trúðu á sjálfa þig
Segðu aftur og aftur við sjálfa þig, að þú getir allt og trúðu á það. Margar konur hafa ekki trú á sjálfri sér, það er alltaf lítil rödd sem hvíslar ”það mun einhver, einhvern tíma komast að því að ég er ekki nógu góð til að leysa nein verkefni, ég er ómöguleg”. Fjarlægðu þessa rödd strax!

4. Finndu þér fyrimynd
Hverjum viltu líkjast? Dettur þér einhver persóna/persónur í hug sem HAFA náð sama markmiði og þú hefur og þráir að ná? Getur þú notað þeirra reynslu og aðferðir til að ná þínum markmiðum?

5. Sjálfsagi
Sjálfsagi er mikilvægt lykilorð ef að þú vilt ná árangri. Hvort sem að þú vilt ná árangri í starfi, í megrunarkúr, í ástarlífinu og fleiru, þarftu alltaf á sjálfsaga að halda til að auðvelda þér að ná markmiðum þínum.

6. Vertu meðvituð
Vertu vandfýsin! Það skiptir máli hvað þú lest, horfir á, borðar, upplifir og hverja þú umgengst. Ekki nota dýrmætan tíma í ómeðvitaða hluti. Hættu að lesa léleg og tilgangslaus vikublöð/slúðurblöð og eyða tímanum í lélega sjónvarpsþætti. Lifðu hvern dag eins og hann væri sá síðasti. Þér mun finnast þú verða vitrari, fallegri og heilbrigðaðri ef þú lifir innihaldsríku lífi.

7. Elskaðu sjálfa þig og líkama þinn
Ertu ánægð með líkama þinn og líður þér vel? Ef ekki, þá skaltu gera eitthvað í því NÚNA. Hugsaðu um hvað þú borðar. Misstu aukakílóin sem sitja á rassinum og lærunum og einbeittu þér að losna við appelsínuhúðina (ef að þú hefur áhyggjur af henni). Ef þú ert óánægð með líkama þinn, speglar það sig í þér. Vertu stolt og hreyfðu þig, sýndu hvað þú hefur fram að færa, þú ert sjálfsörugg kona!

8. Fötin skapa manninn (konuna)
Föt senda skilaboð út til annarra og eru hluti af persónuleika þínum. Snyrtimennska og stílhreinn fatasmekkur veitir þér öryggi og aðrir taka eftir. Þér finnst þú hafa stjórn á aðstæðunum sem veitir þér vellíðan.

9. Lærðu að ”selja” þig
Þegar þú ert í atvinnuviðtali eða þegar þú talar við aðra, máttu ekki minna á bílasölumann þegar þú talar um sjálfa þig og heldur ekki vera það hæversk að enginn mun komast að því að þú ert mjög hæfileikarík kona. Notaðu innsæi þitt, og MUNDU að þú mátt aldrei nefna þá hluti sem þú ”heldur” að þú getir ekki gert. Þú hefur margt fram að bjóða, vertu bara viss um, að aðrir viti hvaða eiginleika þú hefur. Hugsaðu eins og karlmaður!

10. Að koma sér áfram!
Ef þú vilt gera allt sjálf, stökktu þá yfir girðinguna þar sem að hún er lægst!! Notaðu netverkið þitt; vinkonur, fjölskyldu og kunningja. En mundu! Allir sem að þú mætir á leiðinni upp, muntu einnig hitta á leiðinni niður. Mundu þá greiða sem fólk gerir þér og vertu fús til að hjálpa öðrum í svipuðum aðstæðum. Saman erum við sterkastar!

Engin ummæli: