Jæja, mín bara á hækjum þessa dagana og víst ekki sú eina í vinnunni :-(
Rann aðeins fyrir utan íþróttahúsið á þriðjudaginn og sneri mig nokkuð illa á hægri fæti. Hitti lækni og hann sagði mér bara að vera heima með löppina upp í loft. Fór í vinnu svo í dag, bara svona rétt til að fá jólafílinginn á þemadögunum. Er öll að hressast fætinum og farin að stíga í hann og höltra án hækjanna. Einhverjir grínuðust í vinnunni í dag, að þetta væru nýju fylgihlutir kennaranna á Skagaströnd, þegar við vorum orðnar þrjár á hækjum. Spurning um að fara að loka skólanum vegna slysa starfsmanna????
Jólaundirbúningur gengur vel, gerði góða verslunarferð um síðustu helgi á Krókinn og búin að kaupa allt sem þarf að senda í burtu. Ætlum svo á Akureyri á morgun að klára þessi skemmtilegheit, fatakaup og fleira........................................ Mikið verð ég fegin þegar því er lokið.
Er ekki að stressa mig á neinu og þó það sé rykkorn hér eða þar, þá fer það ekkert frá mér, þótt ég sé ekki með moppu og tusku alla daga. Fer í frí 20.des og tek þá netta hreingerningu.
Er búin að baka nokkrar sortir og það er gott að borða þær svona á aðventunni, ætla kannski að baka pínu meira, lagköku og marens.
Ég eignaðist frænku 6. des sl. og heitir hún María Rós, innilega til hamingju Margrét og Sævar. Mér finnst ég alltaf vera að eignast einhver frændsystkini, óléttan er víst að ganga :-)
Best að skella sér í eldamennsku kvöldsins..............................................
15 desember 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hæ aftur, er það rétt sem ég var að lesa á blogginu hennar systur þinnar um að þú værir bomm?? svar óskast!!
kv Maja og Co
heyrru, ef þú lest síðustu línurnar í blogginu, þá greinilega hefur hún smitast af þessari frændsystkina óléttu. hehehe...
njóttu hreingerningarinnar dear sister... og sendu mér slatta af öllum þessum heimabaksti.. bissi bauninn hefur engan tíma til að baka...
Hilsen pilsen...
Heiðagella
Já Mæja mín, svo er víst og skráð 20. maí, góður dagur fyrir þig !!!!
Heiða mín, kom ekki smákökunum með jólagjöfunum, sendi bara með Svenna um áramótin.
Skrifa ummæli