Upp er runnin seinni Þorláksmessa ársins. Þessum degi fylgir skötuát, jólastress, tiltekt og fleira í þeim dúr. Á þessu heimili var þó ákveðið að fara ekki í skötu þar sem lyktarskyn ritarans er mjög næmt og ekki talið þola þessa stæku lykt. Var því eldaður saltfiskur í hádeginu í staðinn fyrir skötuát í Fellsborg. Vona samt að sem flestir hafi skellt sér þangað.................... Bendi ykkur á að lesa bloggið hjá Heiðu systir í tilefni dagsins, held hún sé að læra sagnfræði þarna úti...............
Er að burðast við að klára tiltekt á heimilinu, skipta um á rúmum, skúra, þvo og fleira í þeim dúr. Er langt komin og gengur vel þar sem ég er laus við hina á heimilinu, þau skelltu sér í bíltúr í rokinu.
Var að föndra í PictureTrail og með þessum myndum óskum við fjölskyldan öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
2 ummæli:
Sagnfræði, mjólkurfræði, tæknifræði, líffærafræði, er þetta ekki allt það sama...????
Enívej (er allavega ekki að læra ensku :)
Vona að þið njótið jólanna þarna í Doddalandinu, þrátt fyrir vöntun á ýldufílu í húsinu.. (ojoj ég borðaði svona skötu um daginn, ahhhh hef smakkað það betra, en allt fyrir málstaðinn)
Við heyrumst i morgen, svona þegar mesta pakkaflóðið hefur runnið í gegnum hendurnar á 2 frekar spenntum börnum
Kys og kram
Heiðagella pHd historíja
Gleðileg jól elsku Dagný mín.
Kær kveðja handan yfir ána.
Anna Magga
Skrifa ummæli