02 janúar 2007

Blogg á nýju ári

Gleðilegt ár allir saman og takk fyrir það liðna.

Hef haft það ansi huggulegt í jólafríinu mínu, enda varla annað hægt, hvíla sig, borða, heimsóknir, borða, hvíla sig og þannig má halda áfram. Á morgun byrjar skólinn aftur og þá er bara ekkert frí fyrr en páskarnir koma........... Við vorum bara þrjú hérna í kotinu á aðfangadag en síðan komu mamma, pabbi, Svenni, Tómas og Úlfar í hangikét á jóladag. Svo var kaffi hjá Sigrúnu og Sigurjóni á annan í jólum. Um áramótin vorum við hjá Höllu og co. í kalkúnaveislu mmmmmm, ljómandi góður kalkúnn. Sumir voru eitthvað að öfundast yfir því að ég "mætti" borða meira þar sem ég hefði um annan að hugsa en mig. En magaplássið var nú ekki meira en svo að ég rétt kem oní mig mátulegum skammt, ekkert pláss fyrir auka. En eftir ofát síðustu viku er núna bara fiskur, hafragrautur, skyr og ávextir í matinn næstu dagana.

Horfði á áramótaskaupið og ég held að ég tilheyri þeim hópi sem hefur ekki húmor eins og útvarpsstjórinn sagði. Nær öllum í Höllupartýinu fannst þetta ömurlegasta áramótaskaup í háa herrans tíð. Hvað var leikstjórinn að pæla???? Eina góða í skaupinu var Baugsmyndin og barnið með kreditkortið. Heyrði svo í morgun fólk hjá RÚV vera að hrósa skaupinu, þau hafa örugglega ekki mátt segja neitt annað.

Heilsufarið á heimilinu var nokkuð gott þessi jólin, miðað við oft áður. Það var segin saga að ég lagðist í flensu í jólafríinu en núna verum við svo gott sem stálslegin, fyrir utan smá kverkaskít sem telst varla með.

Á gamlárskvöld má sjá fullorðna karlmenn breytast í smákrakka þegar þeir umgangast flugelda. Þetta sást greinilega á gamlárskvöld. Á Sauðárkróki var líkt og að vera í Líbanon, ég get svo svarið það. Þeir sem voru með okkur í partýi skutu upp þessum svakalegu bombum, tertum og gosum að sjaldan hefur annað eins sést. Himinninn logaði bókstaflega kl. 00:00 þegar nýtt ár gekk í garð. Það var rosalega flott að horfa á þessa sýningu. Svo var svo stillt veður að það rigndi yfir mann snjó blönduðum púðurleifum, pappaafrifum og spýtum. Bíllinn er ekkert svo rosaflottur eftir þetta.

Jæja, ekkert fleira er sniðugt í kollinum á mér núna
Adios amigos

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ skvís!
Gleðilegt ár. Nú er stelpan forvitinn, af hverju máttir þú borða meira þar sem þú hafðir annað að hugsa en þig.....er það sem ég held?? :)
Kv. Vigga

Dagný Rósa sagði...

Vigga :-)
Já, ef þú ert að velta fyrir þér fjölgun í sveitinni.

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ!
Til hamingju með að vera að fjölga þér :) Aldrei nóg af Dagnýjum :)

Kveðja í kotið

Nafnlaus sagði...

Ertu í púkastuði??

Nafnlaus sagði...

Komdu sæl og blessuð og innilega til hamingju með daginn. Vonandi áttu góðan dag og þið öll. Allir biðja að heilsa hér, kær kveðja Maja

Nafnlaus sagði...

Hallú

Til hamingju með afmælið :)

kv
Rósa

Heiðagella sagði...

Til hamingju með daginn og vera kominn mun nær Fertugsaldrinum, en í gær.
Vonandi renna ammæliskökurnar ljúflega niður og Sveitóarnir hagi sér vel í boðinu...
Bið að heilsa hinum Doddunum.

Heiðagella

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn í gær ;*

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn í gær.

Kveðja
Aðalbjörg