Þorrinn er genginn í garð með tilheyrandi þorrablótum og djammi. Einnig fylgja þorranum nokkur afmæli í familíunni. Takk fyrir allar afmælisóskirnar á síðasta blogg. Alltaf gaman að eiga afmæli, þótt maður sé kominn á fertugsaldurinn. En fleiri afmæli: Benjamín Breki litil frændi minn í Danmörku verður tveggja ára á morgun og móðir hans, hún Heiða systir á afmæli 1.feb og verður 20+8. TIL HAMINGJU BAUNARNIR MÍNIR !!!!!!!!
Er að hugsa um að skella mér á Hreppablótið um næstu helgi. Doddinn eitthvað tregur til en mér tekst örugglega að draga hann með. Alltaf gaman á þorrablóti. Hef reyndar verið að velta þessum þorrablótur fyrir mér. Hér í gamla daga borðaði fólk þorramatinn næstum allt
árið, enda hinar bestu verkunaraðferðir að reykja, súrsa og salta mat. Þá þótti þetta nú ekki fínn matur, heldur var verið að nota allt af skepnunum. Svo núna, á 21. öldinni er þorramatur aldrei vinsælli. Allir flykkjast á þorrablót og helst tvö eða þrjú. Það þykir fínt að borða þorramatinn núna. Ja, ef við Íslendingar erum ekki klikk eða hvað?????? Svo auðvitað þarf að drekka mikið með, bjór og brennivín og enginn maður með mönnum nema hann skelli í sig hákarlsbita og brennivíni, ojbarasta. Hef ekki smekk fyrir því "hnossgæti".
Smelltum okkur til Akureyrar í gær og fjárfestum í flísum, þvottahúsvaski, borðplötu og fleiru í fína þvottahúsið okkar. Sturtan komin upp og EÓB búin að vígja hana í morgun, svo nú er bara að klára að rífa baðið út og smella flísum á veggina, þá verður þetta rosalega fínt. Mikið hlakka ég til þegar þetta verður búið.
Vonandi er bloggleti mín að mestu yfirstaðin, hef ekki haft orku í það að setjast við tölvuna, þannig að þið fáið að heyra meira úr sveitinni seinna.
Þorrakveðja.
28 janúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli