26 apríl 2007

Sumartíð

Ég man nú eftir verri aprílmánuðum en þetta. Veðrið leikur við mann daginn út og inn og það spáir bara betra veðri næstu daga :-) Júhú, út með garðhúsgögnin og förum að grilla.......

Ég hef það gott þessa dagana, gott að vera hætt að vinna og geta hugsað aðeins betur um mig og mína. Svefninn er aðeins að lagast síðustu daga en bumbubúinn þjáist af plássleysi og lætur mömmu sína sko finna fyrir því daginn út og inn. Mikið hlakka ég til þegar þegar þessu lýkur. Nú ættu að vera eftir 22 dagar en svo er alveg eins víst að kraftakrílið láti aðeins bíða eftir sér. Það væri nú reyndar hentugt í annars annasömum vorverkum, sjáum bara til.

Fékk góðar konur í heimsókn í dag, Þóru á Stóru-Giljá og Eydísi Evu 2 1/2 mánaða gamla. Rosaleg dúlla sú stutta og með mikið, dökkt hár.

Annars er dagurinn í dag mjög skrítinn, búið að vera steikjandi hiti og svo núna allt í einu er komin rigning, vonandi bara hitaskúr. Við hjónaleysin erum eins og leigubílstjórar í dag, keyra og sækja í skólann, keyra og sækja í afmæli, mæðraskoðun á Blönduósi og svo fer ég á fund á Skagaströnd í kvöld. Telst til að þetta séu um 120 km. Geri aðrir betur.

Svo ég haldi nú áfram að segja frá afrekum Tómasar Inga, þá varð hann nú ekki í topp þremur sætunum í síðustu viku hjá FNV. En bekkurinn hans er svo klár í stærðfræði að þau komust í undanúrslit í KappAbel stærðfræðikeppninni og brunuðu til Reykjavíkur í morgun til að keppa. Það eru 2 strákar og 2 stelpur í liðinu og Tómas komst í það. Vonandi komast þau svo í úrslitin á morgun. Það er gott að vera svona klár.......... Kannski eitthvað líkur systur sinni, hehehe, þá meina ég ekki Heiðu hehehehehe.

Er að fylgjast með Glæstum vonum þessa stundina. Ótrúlegt að geta gert sér upp hjartaáfall til að fá þá tengdadóttur sem maður vill. Myndi ekki vilja vera í þessari Forrester-ætt. Þetta er að verða svo mikið drama þarna að ég hugsa um, skyldi þetta vera svona hjá ríka og fína fólkinu í Ameríku?? Spyr sú sem ekki veit.

Sauðburðurinn að komast af stað, fyrsta bar á sunnudaginn var og núna eru komin 10 lömb. Ágæt törn framundan næstu tvær vikur, svo smápása og svo aftur törn. Vonandi á þetta allt eftir að ganga vel og barnið fæðist ekki í miðri törn.

Best að fara og horfa á Nágranna, er húkkt á sápum þessa dagana, hvað á ég svosem annað að gera.................

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Halló þú þarna í sveitinni, gott hjá þér vera hætt að vinna og slappa af, þú veist að þú þarft að bíða til 20. maí:) annars allt gott að frétta hér, við komum norður í 11 .maí en förum aftur 13, smá skreppi djamm ferð, hitta gömlu Húnvellingana. við verðum til viðtals á Kúlu á laugardeginum til 2-3, nennum ekki á rúntinn þegar að það er svona stutt stopp., kveðja Maja og Co

Nafnlaus sagði...

Sápurnar eru gjörsamlega ómissandi fyrir konur í fæðingarorlofi....ég elska glæstar og granna.....eftir nokkra daga verðuru farin að horfa á spænsku sápurnar líka:Valentínu og se bonita bla bla bla:)

Heiðagella sagði...

Mér finnst nú vera dapurlegt merki um gáfnafar, að lýsa því yfir að maður sé húkkt á glæsum vonum og nágrönnum.... svona rétt eftir að vera búin að grobbast yfir greind.. suss suss... Held að yngstu 2 börnin í hverri familíu séu alltaf gáfuðust, hin eldri 2 voru svona tilraunaframleiðslur. því eins og allir vita, er alltaf endurbætt í hvert skipti sem eitthvað nýtt er gefið út....hahahahahahahahaahahahahahahahahaha..
Hafðu það annars gott.. og farðu að skutla út þessum krakka.....
(neyðist nú samt til að viðurkenna að eg glápti líka á imbann, kasólétt og í fæðingarorlofi.. en þó ALDREI á glæstar.. Dr. Phil og Oprah voru efst á lista.....)
Hilsen Heiðagella, og það er 20 stiga hiti hjá mér. iss piss..