17 apríl 2007

Vorið er komið og grundirnar gróa

Þá er vorið alveg að bresta á og mikið er það nú gaman. Ekki langt í að lömb fæðist hér á bæ, kannski vika eða svo. Allir hlakka til þess tíma, sérstaklega Elín Ósk. Hún hlakkar nú reyndar meira til að fá systkini, sem gerist reyndar á sauðburðartíma, allt svo skipulagt í sveitinni !!!!! Ekki annað hægt að segja en að veðrið leikið við mann þessa dagana, ekki er alla vegana mikið um snjó. Svo er líka orðið svo bjart, orðið albjart kl. 5 á morgnana, látið mig vita það, vakna svona snemma þessa dagana :-( Gott að taka daginn snemma, eða hvað ?

Ég hætti að vinna síðasta föstudag, þann 13. Sumir tengja þann dag ólukku en ég held að svo sé nú ekki. Svo nú er ég heima, reyni að slaka á og hvíla mig eitthvað, ásamt því að taka ýmislegt barnadót til. Allir að verða mjög spenntir á heimilinu, bara 5 vikur eftir. Fór í vaxtarsónar um daginn og allt lítur rosalega vel út, von á stærðarbarni. Fengum þó ekki að vita hvort kynið það er, hefði samt alveg verið til í það. En surprise, surprise.

Saumaklúbbur á morgun og svo sumardagurinn fyrsti þar á eftir. Lítur út fyrir að vetur og sumar frjósi saman, það veit nú á gott.

Tómas Ingi lillibror er að keppa á fimmtudaginn í stærðfræðikeppni FNV á Sauðárkróki. Honum gekk svona glimrandi vel í forkeppninni og ég er að hugsa um að fara og fylgjast með úrslitunum. Vona bara að hann vinni.

Er orðin nokkuð þreytt á öllum þessum skoðanakönnunum þessa dagana. Held að kosningabaráttan sé farin að snúast um skoðanakannanirnar. Hlustaði annars á frétt í gær það sem gerð var skoðanakönnun um skoðanakannanir og fólki finnst of mikið um skoðanakannanir. Hvað finnst ykkur? Finnst skondið þegar heilu og hálfu spjallþættirnir snúast um þetta fyrirbæri sem hefur svo ekkert að segja á kjördag.

Jæja, best að fara og leggja sig aðeins.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Samkvæmt mínum skoðanakönnunum, nei ég er bara að stríða þér....
Gott að heyra að allt gengur vel með krílið, þú verður bara að reyna að finna þér tíma til að sofa. Ég væri sko meira en til að vera háð svefnleysi þessa dagana því þá gæti ég lært aðeins lengur.
Vonandi gengur Tómasi vel í stærðfræðinni á morgun, leiðinlegt að geta ekki verið þarna og fylgst með.

knus og kram
Rósa

Nafnlaus sagði...

takk fyrir pakkann, kom loks í hús í gær.....
Fer svo að koma barnadótinu af stað á næstu dögum, erfitt að finna tíma sökum þess að skólinn er gjörsamlega að gera sitt besta í að eyðileggja allan frítíma....

Heiðagella..
p.s. barnið er strákur.....

Nafnlaus sagði...

hey, hvernig gekk Tomma???

kv Áróra

Dagný Rósa sagði...

-Rósa: gaman að heyra frá þér, bíddu bara þangað til þú verður bomm, þá færðu smáskammt af svefnleysi.

-Heiða: hey, þú valdir að fara í þennan skóla, og já, örugglega strákur.

-Áróra: Tómas varð EKKI í 1.-3. sæti en sagði að sér hefði gengið vel. Hann fékk nú líka smá money, bók og fínan vasareikni.