Hef ekki verið sú duglegasta að blogga upp á síðskastið, einhvers konar bloggleti í gangi.
Loksins komin í langþráð páskafrí. Mikið er gott að geta slakað aðeins á, án þess að vera að hugsa um vinnuna. Hef síðustu tvær vikur hætt á hádegi í vinnunni og farið heim og hvílt mig. Nætursvefninn er ekkert að lagast og ljósan segir að ég hljóti bara að þurfa að sofa svona lítið. Glætan, ég hef alltaf þurft að sofa minnst 7-8 tíma á nóttu en ekki 4-6 eins og núna. Ef vonandi næ ég að hvíla mig vel í páskafríinu. Bumbubúinn er á sífelldu iði og mikið um hreyfingar. Við vitum ekki kynið svo það verður bara surprise í sauðburðinum.............
Við Elín Ósk ætlum að fara suður á morgun og vera í 2-3 daga. Ætlum að reyna að kíkja á eitthvað af nýjum frændsystkinum, kíkja í barnabúðir og gera eitthvað skemmtilegt. Doddi nennir nú ekki með okkur, enda hefur honum aldrei þótt skemmtilegt að ráfa á milli búða og bara skoða, hann þolir nú ekki mikið svoleiðis. Við finnum vonandi það sem okkur vantar.
Heiða systir er búin að vera í Mílanó alla vikuna og kemur til DK í dag. Mikið öfunda ég hana að skella sér svona, hún var reyndar í einhverjum fyrirtækjaheimsóknum, en hvað um það. Ítalía er skemmtileg fyrir því. Annars finnst mér "allir" vera að fara til útlanda. Það er rosamikið um það í vinnunni hjá mér og svo bara fólk sem ég þekki hingað og þangað. Aldrei þessu vant ætla ég að vera heima þetta sumarið en síðustu 4 sumur hef ég farið út í viku, alltaf eitthvað tengt vinnunni. Ekki amalegt það. Nú ætla ég að vera heima. Fer bara seinna.
Gleðilega páska.
31 mars 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Sæl og blessuð, ójá, gott að vera komin í páskafrí. Skemmtið ykkur vel í bænum, við verðum bara heima um páskana, Arna og Smári ætla að koma til okkar,svaka stuð, hitt liðið verður á Hóli. Gangi þér vel að hafa hemil á bumbubúanum, þú verður nú að sofa e-ð en því miður er það mín reynsla að þetta á bara eftir að versna.... heyrumst og bið að heilsa í bæinn
Hæ, það er greinilega mikil orka í krílinu og þú átt örugglega ekki eftir að sakna sparkanna þegar það kemur í heiminn.
Annars ætlaði ég að senda þér link á síðu með fullt af kennsluforritum
http://www.engjaskoli.is/kennsluforrit.htm mjög góð síða.
Gangi þér sem best,
kveðja
Skrifa ummæli