04 mars 2007

Letikast...............

Er ekkert ofsalega hress þessa dagana, svefnleysið enn að plaga mig. Það er þó gott að fá hvíldardaga eins og núna um helgina, hef haft það ansi náðugt. Smellti þó í slatta af bakkelsi í morgun, alltaf gott að eiga eitthvað með kaffinu ef einhver droppar í smásopa.

Er að fara í "orlofsferð" suður um helgina með næstum 40 k0num. Það verður sko stuð. Ætlum út að borða, í dekur og verslun......................

Er farin að hlakka til páskafrísins, þótt það sé eftir 4 vikur. Ætla þá suður í smáverslunarleiðangur. Okkur vantar ýmislegt fyrir barnið og okkur.

Er annars ekki í miklu bloggstuði þennan daginn.

4 ummæli:

Hugrún Sif sagði...

Jæja. Loksins kvitta ég fyrir mig :) En vá hvað ég er fegin að geta sofið ... ENNÞÁ allavega ... Er svo voðalega þreytt eitthvað að ég veit ekki hvernig það endaði ef ég næði ekki að festa svefn :) en þetta rjátlast af mér!!

Hlakka ekkert smá til kvennaferðarinnar og alveg dauðfegin að vita af annarri bumbu í hópnum!! Sá fyrir mér að vera þarna ein ekki í glasi. Sjáumst :)

Nafnlaus sagði...

bara svona rétt að kvitta fyrir. vona að þið hafið það gott í Doddalandi... :o)
Heiðagella

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ Dagný jæja þá fer að líða að ferðinni okkar Við Vigga sátum sveittar í gærkveldi að leggja lokahönd á ferðaplanið, held að þetta verði hörkuskemmtileg ferð
Sjáumst á föstudaginnnnnnnnnnnnnnn
kv Linda Björk

Nafnlaus sagði...

Sæl Dagný Rósa og takk fyrir innlitið.
Ég á að eiga 31.júlí en vonast til að vera búin að þessu um miðjan júlí. Ég verð líklega sett af stað ef það lítur út fyrir að barnið verði eins stórt og Gunnar Bjarki var fæddur, en hann var 21 mörk og 58cm. Ég er ekki til í að ganga í gegnum það aftur.
En það gegnur allt vel og ég hef verið mjög hress fyrir utan þreytu. Það er allaveg nógu mikið álag á manni þessa dagana þar sem verkefnin hellast yfir mann í skólanum.
Ég bið að heilsa norður og gangi þér vel með allt saman.
Bestu kveðjur
Sigrún.