Komin heim eftir vel heppnaða orlofsferð til Reykjavíkur. Vorum reyndar mjög lengi á suðurleiðinni, vegna færðar og veðurs, en ég held að Gústi hafi bara haft svona gaman af því að keyra okkur !!!!!! Fórum svo á laugardegi í MeccaSpa í nudd og pott og svaka notalegt þar. Hittum svo Heiðar snyrtimenni seinnipartinn og lærðum margt af honum. Svo var bara Broadway um kvöldið, Tina Turner tribute. Bryndís Ásmunds er bara snillingur. Svo var ball til 1.30 og fór ég fljótlega eftir það að halla mér. Sunnudagur svo í Smáralind, búðarráp.............. kortastrau................ Kom heim um kl. 19:00 endurnærð og ekkert þreyttari en venjulega.
Mæli með svona ferð af og til.
Árshátíð hjá okkur á föstudaginn, mikill tími fer í æfingar. Hlakka til þegar hún er búin, viss áfangi að baki. Krakkarnir eru svo duglegir og verða örugglega langflottust á sviðinu. Heimasætan hlakkar lika rosalega til.
Er ekkert hressari á morgnana, alltaf sama morgunleikfimin hjá bumbubúanum.
Adios
13 mars 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Takk fyrir sídast. Á þessari árshátíd sit ég bara frammi í sal horfi á og svitna ekkert í lófunum :)
Sjáumst.
ég myndi nú reyna að siða þennan bumbubúa til, svona áður en HANN poppast út... þá er það allt of seint.....
Heiðagella
Takk fyrir síðast :) það var bara auðveldara en ég hélt að vera bumba inn um allar fyllibytturnar ahahahah nei nei það voru allir svo spakir :)
En annars nauðsynlegt að skella sér í svona ferðir af og til!!! Mig langar pottþétt með næst.
Skrifa ummæli