23 júní 2007

Lítið að gerast í sveitinni......

Hef ósköp lítið að segja þessa dagana.

Má þó til með að óska Heiðu systir til hamingju með glæsilegt próf í gær, hún fékk 10 fyrir lokaverkefni vetrarins og er því hálfnuð í mastersnáminu.

Litli kútur dafnar vel og er ósköp vær og góður. Hann er mjög duglegur að drekka og stækkar óðum. Eitthvað er nú dökku hárunum á kollinum farið að fækka og ljós hár að gægjast upp úr í staðinn, föðurnum til mikillar ánægju.

Síðasta ærin bar í vikunni og þá er þessu loksins lokið, öllum til mikillar ánægju. Má segja að sauðburðurinn hafi gengið mjög vel og lítið um vanhöld og frjósemi nokkuð góð, höfum alla vegana ekki fengið fleiri lömb. Ekki er nú búið að flytja á fjall, þar sem húsbóndinn er enn að hugsa sig um hvort hann eigi að hafa hjörðina heima og slátra í sumarslátrun í ágúst og byrjun september. Ég held að skjáturnar verði orðnar nett pirraðar á flóanum þegar líður á júlímánuð.

Fórum í heimsókn til pabba og mömmu á fimmtudaginn og var það fyrsta langa bílferð unga mannsins. Hann tók þessu öllu með stóískri ró og svaf meiripart leiðarinnar. Reyndar eru holurnar svolítið pirrandi en þvílíkur munur að keyra á malbiki frá skíðasvæðisvegi og niður á Skarðsmelana. Er svo farin að hlakka til þegar þetta klárast allt saman.

Erum að fara til RVK á mánudag og gistum eina nótt, ætlunin er að kaupa sófa í stofuna og finna einhver föt fyrir skírn, sem verður 7. júlí. Spurning hvernig gangi með herramanninn í búðum.

Jæja gott í bili.......

2 ummæli:

Heiðagella sagði...

takk takk ... ég er enn á hamingjuskýji...
Kv Heiðagella

Heiðagella sagði...

og er gifting líka í dag.........
AAAAAAAMEN