Ég fór á Krókinn á miðvikudagsmorguninn og var þar yfir daginn, var frekar stressuð vegna fjarlægðar frá spítalanum og ákvað því að fara tímanlega. Svo eftir hádegi datt nú allt að mestu niður og ég gat hvílt mig ágætlega. Um kvöldmatarleytið fóru hlutirnir að gerast og þegar Doddi kom rúmlega 8 þá voru verkir farnir að ágerast. Svo kl. 23.42 fæddist þessi ljómandi fallegi drengur og gekk fæðingin furðu vel, þrátt fyrir lítil sem engin verkjalyf og ekkert glaðloft. Sko mig. Jæja, báðar ljósmæðurnar voru við fæðinguna og mikið hrós eiga þær skilið fyrir aðstoðina.
Stærðarstrákur, akkúrat 16 merkur og 55 cm. Ég var eiginlega viss um að þetta væri strákur en Doddi var á því að þetta væri stelpa. Hann hafði rétt fyrir sér með Elínu og ég núna.
Jæja, við tókum fyrstu dögunum með ró á Króknum og komum heim í dag. Það er nú ósköp ljúft að vera komin heim, fá að sofa í sínu rúmi og vera hjá fjölskyldunni, þó núna þurfi maður að hafa sjálfur fyrir því að útbúa sér eitthvað að borða mörgum sinnum á dag.
Smelli hér inn nokkrum myndum af prinsinum og síðan mun ég setja inn myndir á barnalandssíðu fyrir hann þegar ég hef tíma.
Takk fyrir allar kveðjurnar á bloggið og sms-in, gott að vita til þess að einhverjir séu að hugsa til manns.


Á vigtinni
Stoltir foreldrar með prinsinn sinn
Einstaklega stolt og ánægð stóra systir
Hér er ég ansi mannalegur
7 ummæli:
Hæ hæ
Atfur til hamingju með fallegan dreng :=) Mér finnst ég sjá svolítinn Dagnýjar svip á honum :)
Kv. Vigga
ofsalega eru menn nú krúttlegir.. held þetta liggji í genunum......
kossar og knús frá baununum....
Innilega til hamingju elsku Dagný, Doddi og Elín Ósk. Þetta er myndar piltur greinilega eins og við var að búast :-)
Ji hvað maður er mannlegur og sætur :) Innilega til hamingju með drenginn!!!
Vá hvað drengurinn er flottur, sterkur svipur að mömmu sinni ;)
Innilega til hamingju, Dagný, Doddi og Elín Ósk.
Kveðja,
Margrét og co.
Til hamingju með prinsinn ;*
Myndarpiltur þarna á ferð, ekki frá því að það sé hreppstjórasvipur á honum.
Gangi ykkur sem allra best
kveðja frá Akureyri
Skrifa ummæli