Hér er allt í ró og spekt ennþá. Fór í skoðun í gær og á að fara næst á þriðjudaginn ef krílið verður ekki komið... hef ekki alveg þolinmæði í þetta lengur. Þá verður væntanlega eitthvað farið að hreyfa við því. (Hef á tilfinningunni að þetta gerist allt um helgina!!!)
Skólaslit voru í dag og við erum alveg rosalega montin af okkar dömu. Hún fékk svo ljómandi fínar umsagnir í öllum fögum og allt gengur svo rosalega vel. Fyrsti "frídagurinn" var hjá henni í dag, þar sem skólaslitin voru kl. 18:00. Henni fannst þetta frekar furðulegt og var farin að óska þess að vera frekar í skólanum en heima, veðrið vont, lítið handa henni að gera úti og hún þurfti mest að hafa ofan af fyrir sér sjálf. Þetta viðhorf verður breytt eftir örfáa daga.
Íslenskt vor og sumar..................
Flestir sjá fyrir sér 10-20 stiga hita, sól, stöku rigningadagar, grasið sprettur á fullu, grillpartý og fleira í þeim dúr. Nei, nei, nei ekki núna. Hér er uþb 0°C og slyddar, hvít slykja yfir öllu. Ég vorkenni svo lambfénu sem þarf að vera úti. Væri alveg til í að það færi aðeins að hlýna á Klakanum.
Jæja, næsta blogg verður örugglega ekki fyrr en eftir einhverja daga, svo endilega fylgist bara með á síðunni hjá Heiðu systir, hún mun örugglega koma einhverjum fréttum þar inn.
Vorkveðja úr slyddunni....................
25 maí 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
jábbbbbbbs.. ég set sko inn frétt leið og litli frændinn lítur dagsins ljós..... ég reikna fastlega með HANN komi á morgun, 29.maí.... hlauptu nú 4 til 8 hringi kringum húsið, skúraði gólf, veggi og já allt mögulegt bara, strauja og eitthvað fleira húslegt, krakkinn verður þreyttur á þessum hamagangi í "húsinu" sínu, og neyðist til að poppast út, þar bíður rólegheit uppí hlýju rúmi....
njóttu síðustu grenjulausu dagana mín kæra...... og munið að senda mér mynd um leið og ljósið birtist....
Heiðagella
Til hamingju með litla prinsinn
Kveðja
Aðalbjörg og co.
Hamingjuóskir með drenginn
kveðja úr kuldanum á Akureyri
Innilega til hamingju með drenginn. Ég vildi að ég væri búin að þessu, ég á bara um 8 vikur eftir. Ég hef verið að fylgjast með síðustu daga, gaman að allt hafi gengið vel.
Bestu kveðjur
Sigrún í eyjum.
til lukku með litla ljósið.... hann er frekar sætur.....
Fyrir áhugasama þá liggur lítil mynd af prinsinum á blogginu mínu.... endilega kíkið...
Heiðagella
Til hamingju med litla drenginn :)
Kv. Vigga og co
Kæru Dagný og Doddi innilega til hamingju með litla sveitamanninn
Bestu kveðjur
úr sveitinni Linda Björk
Innilega til hamingju með drenginn :)
Bestu kveðjur,
Hugrún Sif
Skrifa ummæli