15 maí 2007

Ekkert að gerast, eða þannig :-)

Jæja, margir lesendur þessarar síðu væntanlega farnir að bíða eftir fréttum af bumbubúanum. Eins og staðan er núna er bara ekkert að gerast, enda ekki skráð fyrr en 19. maí. Það gæti þó alveg tekið upp á því að poppast út eitthvað áður, eftir því hvað ég hamast og puða mikið hér heima. Alltaf nóg að gera í sauðburði og stendur hann sem hæst núna. Er frekar fúl yfir að geta ekki gert meira en ég geri, Doddi fer alveg með mig eins og einhverja postulínsdúkku..............

Fórum á vortónleika Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í gær. Þar var ungfrúin að spila á píanó og gekk ljómandi vel, enda áhugasöm með eindæmum og kunni þetta alveg upp á sína 10. Alltaf gaman að heyra krakkana spila og mörg mismunandi hljóðfæri sem í boði voru. Mér finnst nú reyndar harmonikkan alltaf skemmtilegust og það voru tvö sem spiluðu á slíka í gær, ljómandi flott.

Hef ekki nennt að svekkja mig á úrslitum í kosningum og Júróvisjón, enda alger vitleysa að eyða tímanum í svoleiðis. Sá reyndar í Mogganum í dag að þetta "Austantjaldapakk" eins og sumir vilja kalla löndi fyrir austan okkur, að það voru ekkert endilega þau sem voru að kjósa sig sjálf, við í V-Evrópu gerðum það líka. Eiki stóð sig vel.

Hef ekki heldur nennt að svekkja mig á þessu veðri hérna þessa dagana, þegar frostið fór í -5°C fyrir nokkrum dögum sannfærðist ég um að við ættum ekkert að eiga heima hérna. Flytjum á aðeins heitari stað, ég væri alveg til í það en held að Doddinn samþykki það ekki......
Sól og blíða reyndar í dag, en það er víst bara skammgóður vermir.

Jæja, læt heyra í mér seinna.

3 ummæli:

Heiðagella sagði...

mér finnst þetta engan veginn nógu gott kvabb, nennir ekki að svekkja þig yir neinu...hihihi..
vona að litli frændinn minn fari að poppast út... held að Karítas sé jan spennt yir þessum merka atburði og ungfrú sveitagella....

Bið að heilsa í bili. ætla að fara að sinna ælupúkanum litla sem náði að æla alt út í nótt....
Hilsen Pilsen
Heiðagella

Nafnlaus sagði...

Samkvæmt mínum heimildum var mér lofað barni í gær! Þegar maður er búinn að búa of lengi í Svíþjóð þá er maður farinn að ætlast til að fólk mæti á réttum tíma:) En það þýðir víst lítið að kvarta við þessi kríli þau eru svo yndisleg þegar þau loksins koma.....

Ég skal flytja með þér á heitari stað, skiljum bara kallana eftir og búum til okkar eigið júróvisión, pant fá Heiðu í dansana í mínu atriði:)

kv
Rósa

Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel þegar ad átökunum kemur :) Fylgist med þér. Hehe
Kv. Vigga