Fann þessa könnun hjá Hugrúnu Sif og skv. henni eru mínar skoðanir næstar vinstri grænum.......
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 25%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 40%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 62.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 30%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%
Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs!
Vinstri hreyfingin grænt framboð er fylking fólks sem undi sér ekki í nýrri breiðfylkingu vinstrisinnaðra jafnaðarmanna, kosningabandalagi sem seinna varð að Samfylkingunni. Deilt hefur verið um hvort Vinstri hreyfingin grænt framboð sé arftaki Alþýðubandalagsins sem vinstri-sósíalistaflokkur eða jafnvel Kvennalistans. Steingrímur J. Sigfússon, formaður hreyfingarinnar, hefur hins vegar hafnað því alfarið og vill meina að hreyfingin sé nýr flokkur sem stofnaður var frá grunni en ekki sem arftaki annarra flokka. Flokkurinn er vinstrisinnaður og leggur áherslu á náttúruvernd, kvenréttindi, félagslegt réttlæti og sjálfstæða utanríkisstefnu. Hann er lengra til vinstri en Samfylkingin og á margt sameiginlegt með græningjaflokkum í Evrópu varðandi umhverfismál.
Þegar verið var að ræða stofnun Samfylkingarinnar 1999 var nokkur óánægja á meðal sumra innan raða Kvennalistans og Alþýðubandalagsins með að Samfylkingin væri of langt til hægri. Málefni sem höfðu verið ólík á milli Alþýðuflokks og Alþýðubandalags vörðuðu m.a. NATO og inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Því var ákveðið að stofna nýjan flokk sem væri vinstra megin við Samfylkinguna og leggja meiri áherslu á félags- og umhverfismál. Fyrsti formaður flokksins var Steingrímur J. Sigfússon og gegnir hann enn þeirri stöðu. Þegar flokkurinn bauð sig fyrst fram árið 1999 fékk hann 6 menn kjörna. Vinstri hreyfingin grænt framboð fellur sennilega undir tvær flokkafjölskyldur; umhverfisflokka og kommúnistaflokka og arftaka þeirra.
07 maí 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Hvað segirðu.... er sveitafrúin eitthvað að reyna að neita kommúnískum uppruna sínum. Veist vonandi að þú er komin af einum eldrauðum..... hehe og þá ég í leiðinni........
kjóstu rétt
hilsen pilsen... (og já ég er þokkalega búin að kjósa samankrullið sem þú reynir að afneita.........
Fyrirgefðu mér finnst að maður ætti að fá viðvörun svo maður geti hugsað sig um áður en maður hættir sér í að lesa svona blogg, stjórnmál smjórnmál hvað er nú það eiginlega:)
En áður en þú skammar mig fyrir að kjósa ekki þá er ég búin að fara og kjósa í sendiráðinu og ótrúlegt en satt bauð Guðmundur Árni upp á fleiri stimpla en bara S hehe:) En allavega kaus ég rétt, hvað sem það nú er síðan...
kv
Rósa
p.s. bið að heilsa ykkur kommúnistasystur hahhahaha:)
hihi.....
hehe, tók líka þetta próf og endaði á svipaðri niðurstöðu. Held að VG séu eitthvað búnir að fikta í niðurstöðunum. Reyndar las ég á bloggi eftir einhvern að ef maður setur "mjög ósammála" við næstum allt, þá kemur maður nærri 100% VG sem passar náttúrulega við þeirra rök yfirleitt ;-) En af því að þú varst að tala um skemmtileg blogg, þá kemur þetta http://www.toothsmith.blogspot.com/ mér alltaf í gott skap.
Gangi þér vel á síðustu metrunum, bíð spennt eftir öðrum burðarsögum en sauðburðarsögum ;-)
Skrifa ummæli