21 maí 2007

Góðir hlutir gerast hægt


Ekkert að gerast hjá bumbubúa og við erum á því að allt gott láti bíða eftir sér og góðir hlutir gerist hægt. Ekki annað í stöðunni en bara finna sér eitthvað að gera og ekki vera bara að bíða.


Hef á tilfinningunni að þetta komi næstu 3 daga og ég mun örugglega láta vita þegar það gerist.


Sauðburður gengur vel og yfirvofandi er törn næstu 3 daga, þar er sko allt í skipulaginu hjá Dodda, fang skráð, þannig að maður getur næstum því sagt hvenær þessi og hin beri, skeikar yfirleitt ekki meira en 1 degi. Ef þetta væri nú svona hjá mannfólkinu............... Meðfylgjandi mynd er af gersemum í fjárhúsinu.


Ungfrúin á heimilinu í skólanum og þetta er síðasta vikan, skólaslit á föstudaginn, spurning hvort ég komist á þau!!! Hún er að verða svo spennt, líkt og við.


Hilsen

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hva' er ekkert að gerast þarna í sveitinni???
Ég segi að þetta sé strákur, Helena segir að þetta sé stelpa :)

Heiðagella sagði...

Strákur, strákur, strákur, strákur........

Nafnlaus sagði...

strákur...pottþétt!!!

Nafnlaus sagði...

Ég vona bara að þetta fari nú bara að taka enda hjá þér svo þú getir farið að hvíla þig almennilega á nóttunni. Vona að allt gangi vel þegar að þessu kemur.

Kveðja
Aðalbjörg

Nafnlaus sagði...

Ekkert barn?

kv
Rósa