18 júlí 2007

Heyskapur

Jæja þá er heyskap lokið í bili. Þar sem nær ekkert hefur rignt síðan í byrjun júní (að mig minnir) þá var uppskeran eitthvað í minni kantinum. Held satt að segja að áburðurinn hafi ekki nýst sem skyldi. Svenni kom og rúllaði fyrir okkur og var því lokið um hádegi í gær. Þá fór Yfirdoddinn að binda í bagga og kláraði það seinnipartinn. Og nú er hann að tína rúllur heim í stæðu. JIBBÝJEI !!


Elín Ósk er í borgarferð þessa vikuna. Arna og Smári buðu henni með sér á sunnudaginn var og ég held hún komi heim á föstudaginn. Það er eitthvað svo tómlegt í kotinu þegar hana vantar og ekki fer nú mikið fyrir Ásgeiri, borða, sofa, borða, sofa........ Höfum það bara huggó á meðan heimasætan er að leika sér fyrir sunnan. Hún er víst búin að fara að sulla í Nauthólsvík og kíkja í Húsdýragarðinn. Hún hefur örugglega mjög gaman af þessu því ekki erum við foreldrarnir alltof skemmtileg að hennar mati. Annars komum við henni á óvart í síðustu viku. Skelltum okkur til Akureyrar og hún hélt að við værum bara að fara í Bónus. En við gistum í bústað í Kjarnaskógi í eina nótt og það var sko eitthvað fyrir hana, heitur pottur og alles...................


Svo nú er spurning um að skella sér eitthvert í smásumarfrí ?????


Ein mynd að lokum af prinsinum
Adios amigos......................

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ sæta

Gott að allt gengur vel og jiii hvað strákurinn er fallegur og til hamingju með nafnið fallegt nafn.

Heiðagella sagði...

er ekkert nýtt í sveitinni....
knuz Heiðagella