07 ágúst 2007

Smá fréttir úr sveitinni



Jæja, þá er kominn tími á smá uppdeit úr sveitinni.
Smelltum okkur í bústað í Stóru-Skógum (rétt hjá Munaðarnesi) í vikunni fyrir verslunarmannahelgi. Áttum þar góða viku. Svenni bró, Úlfar og María vinnukonan komu um helgina og svo komu mamma og Tómas seinni part vikunnar, enda bústaðurinn stór og fínn. Hjá sumum snérist vikan um heitapottsferðir og minigolf og lá við að Elín flytti lögheimilið í heita pottinn. Henni og Tómasi datt meira að segja í hug að fara með sólstól í pottinn og liggja þar í sólbaði og slaka á, ekki amalegt það. Það var alveg dásamlegt að fara í frí og slaka á og Ásgeir var eins og engill alla vikuna. Og auðvitað fékk hann að kíkja í heitapottinn síðasta daginn og líkaði það bara mjög vel, enda vel klæddur fyrir pottferð eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Við kíktum upp í Húsafell og rúntuðum eitthvað um borgfirskar grundir og sáum margt og mikið, meðal annars að þar hefur líka lítið rignt....... Einnig voru nokkrar Borgarnesferðir, í Bónus, Hagkaup og bankann.

Um versló vorum við svo bara að mestu heima, skelltum okkur þó á Reykjaströndina, aðallega til að skoða veginn og nýju brúna yfir Gönguskarðsána, svaka flott. Og bara smákafli sem er malarvegur yfir fjallið, mikið hlakka ég til þegar þessu lýkur.

Það rignir nær ekki neitt, komu örfáir dropar á laugardaginn og það er engan veginn nóg til að háin nái að spretta eitthvað, fer að hafa áhyggjur af því að túnin brenni ennmeir, nógu eru þau slæm núna. Alla vegana sprettur lítið í garðinum, sem betur fer, þá þarf minna að slá. Helst þyrfti að vera ausandi í 2-3 daga og svo skúrir á nóttunni til að eitthvað fari nú að gerast.

Ásgeir stækkar og dafnar og hann er farinn að brosa og skríkja til allra. Hann er orðinn voða góður að sofa á nóttunni, allt upp í 7-8 tíma í einu, alger lúxus. Hann er mikill spjallari og heldur alveg heilu ræðurnar ef sá gállinn er á honum.
Svo snýst bara lífið hjá honum um að drekka, sofa, spjalla, gubba.................. Er svo að fara í skoðun á morgun, gaman að sjá hvað hann hefur stækkað síðustu 4 vikurnar.

Pabbi gamli skellti sér á hestaHM í Hollandi, flaug til Parísar á mánudagsmorgun og svo ætluðu þeir upp til Hollands í dag, vonandi á hann skemmtilega viku þarna úti. Væri alveg til í að smella mér út.

Elín hlakkar mikið til að byrja í skólanum aftur og ég held að hann byrji eftir tvær vikur. Þannig að nú er um að gera og nota síðustu tvær vikurnar og leika sér eitthvað. Hún er nú frekar erfið að fara að sofa á kvöldin, en við erum að reyna að snúa þessu aðeins við, vakna fyrr á morgnana og fyrr að sofa á kvöldin. Hún er búin að vera nokkuð dugleg að lesa í sumar en kvartar mest yfir því að hafa engan til að leika við, það sé það leiðinlegasta við það að búa í sveit. Hún hefur verið himinlifandi þegar frændur hennar hafa komið í heimsókn á neðri bæinn, þá hefur hún verið mjög dugleg að leika við þá.

Jæja, sosem ekkert meira markvert sem ég man eftir.....................

1 ummæli:

Heiðagella sagði...

Halló halló, litlir menn eru að verða ansi Dagnýjarlegir sýnist mér... gott að þið njótið lífsins í blíðunni, það gerum við líka.....
knuz og kram..

Heiðagella