04 apríl 2008

Er ekki kominn tími á blogg??

Bloggletin að hrjá ritara þessa dagana, það er svo margt að gera að ekki finnst tími fyrir bloggið.
Allir hraustir og sælir í sveitinni og vonandi er þessu flensustandi lokið á heimilinu þetta tímabilið. Ásgeir fór í 10 mán. skoðun í morgun og er 78 cm og 12,160 kg. Svaka stór og duglegur, enda alltaf á ferðinni og er mikill orkubolti og morgunhani. Ekki óalgengt að hér sé vaknað fyrir kl. 6 á morgnana. Það er af sem áður var..........

Vonandi fer vorið að sýna sig næstu dagana, er farin að hlakka til að sjá snjóinn hverfa og grasið grænka.

Sosem ekkert meira að gerast hér.

Engin ummæli: