20 apríl 2008

Sauðburður byrjaður

Jæja, þá er törnin að hefjast, sauðburðurinn.

Imma (gemlingur) hennar Elínar bar í gær tveimur lömbum, hvítum hrút og svartri, krúnóttri gimbur. Hrúturinn var dauður en gimbrin er spræk.

Það var stoltur eigandi sem kíkti í húsin í morgun.

Litli pjakkur fékk líka aðeins að kjassast í gimbrina, en hann vildi bara klípa í hana.



Annars er allt í gúddí í sveitinni, vorið skollið á og geggjað veður búið að vera síðustu dagana.
Og ég fékk EKKI vinnuna hjá VMST sem ég sótti um :-(

Farin að steikja lærið í hádegismatinn.

1 ummæli:

Heiðagella sagði...

óttalega er þetta krúttlegt lamb sem heimasætan fékk.....
knuz i kotið
Baunarnir