Litli prinsinn minn er byrjaður hjá dagmömmu !!! Og ekki orðinn 1 árs. Það gekk rosalega vel hjá honum þessa 2 daga í vikunni og hann er bara nokkuð sáttur hjá Ástu og Óðni. Ég er líka rosasátt hvað gengur vel. Hann hefur sko gott af þessu, er svolítill mömmustrákur.
Ekki nema 11 vinnudagar hjá mér fram að skólaslitum, en þau eru rosalega snemma, 23. maí. Svo eru 3 starfsdagar og síðasti vinnudagurinn er 28. maí. JIBBÍJEI !!!
Sauðburður byrjaður og gengur svona lala, alla vegana koma einhver lömb. M.a.s. fékk Elín eina þrílembda.
Svosem ekkert meira markvert hér í sveitinni.
01 maí 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Hvað er e-mailið þitt? Ef ég má senda þér smá póst .... ;)
bogd@simnet.is er heima og dagnyrosa@skagastrond.is í vinnunni.
vá þau eru svo fljót að stækka þessi kríli, finnst eins og hann hafi fæðst í gær! Thelma er einmitt að fara að byrja í leikskóla! skrítið
hemm, hvernig farið þið að þessu á Skagaströnd? síðasti skóladagur hjá okkur er 30. maí og síðasti vinnudagur er 6.júní???
annars allt gott að frétta og við verðum á ferðinni um miðjan júní og meira að segja karlinn með og hallelúja!!!!!!!!!!!!
sjáumst og bið að heilsa í bæinn
kv Maja
Skrifa ummæli