09 maí 2008

Vorið

Hélt að vorið væri komið fyrir fullt og allt með sól og blíðu. Fattaði svo að það er hvítasunna og sundkennsla að byrja: Það kólnar og snjóar til fjalla. Jedúddamía, þetta klikkar aldrei. Vonandi er þetta svo búið á sunnudag.

Sauðburður gengur barasta ljómandi, fer að verða helmingur borið, sem er bara mjög gott.

Litli kútur alveg að vera 1 árs og þá verður örugglega slegið upp veislu að hætti hússins, en ekki hvað, hef svo duglega aðstoðarkonu sem er sérleg áhugamanneskja um afmæli.
Annars er hann í pössun 3-4 daga í viku og það gengur rosalega vel. Hann vælir pínu þegar ég fer en svo er það bara búið og hann er sæll og glaður eftir það, hjúkkhjúkk, hafði smááhyggjur af litla mömmudrengnum mínum.

Annars er planið að fara á Krókinn á eftir með EÓB til tannsa, kíkja í búðir og heim að baka fyrir veislu á sunnudag.

OAO

Engin ummæli: