Kom að því að það rigndi. Mikið held ég að allir hér í sveitum séu glaðir, enda sprettur grasið miklu betur á eftir. Svo er brostin á hitabylgja held ég, um 20°C, sól og logn. Reyndar fór hitabylgjan í frí í gær og leyfði þokunni að komast að, gott svona inn á milli.
Má til með að óska Heiðrúnu og Fjölni til hamingju með þriðja drenginn en hann fæddist 24. júní sl. Hlakka til að hitta þau. Verð líka að óska Önnu Möggu og Sævari til hamingju með stúlkuna sem fæddist 29.júní sl. Hlakka líka til að hitta þau. Þannig að nóg er um að vera í barnastússi hér í kringum okkur.
Annars er lítið sem ekkert að gerast hér, erum að hugsa um að fara í frí á Vestfirði um miðjan mánuðinn, kemur bara í ljós.
05 júlí 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
jújú, þvottavélin svínvirkar n eitthvað er lín að sitja á peningum þessarar annar, reikna þó með þeim, von bráðar..
njótið sumarfrísins.
knuz Heiðagella
Halló bara að kvitta fyrir innlitið, rak augun í síðuna á facebook..... en ekki hvað þessa dagana.
Kveðja Gunna Stína
Skrifa ummæli