29 júlí 2008

Ferðalög

Á maður ekki að nota góða veðrið og bregða sér af bæ?
Við erum búin að fara í tvær útilegur. Í fyrra skiptið vorum við tvær nætur í Vaglaskógi, í rosagóðu veðri, skoðuðum okkur um í Þingeyjarsýslu og fórum í sund á Laugum í Reykjadal. Rosafín barnavaðlaug þar og Ásgeir alveg í essinu sínu þarna. Við höfðum aldrei komið í Vaglaskóg og okkur fannst nú tími til kominn, rosafínt að vera þarna. Seinna kvöldið okkar var eitthvert partístand á sumum úr hjólhýsaliðinu og sungu nokkrir sama lagið með Helga Björns í nokkra klukkutíma: ...glóð er enn í öskunni............ osfrv. Er komin með nett ógeð á því lagi.
Seinni útilegan var í Ásbyrgi um helgina. Geggjað veður og æðislegt að vera þarna í 20-25 stiga hita. Þegar við komum þangað var fullt á aðaltjaldsvæðinu og okkur vísað á íþróttavöllinn inní botni á Ásbyrgi. Þar var sko gott að vera og hrikalega fallegt. Löbbuðum að Botnstjörninni og skoðuðum fuglalífið. Fullt af krökkum á tjaldstæðinu og nóg að gera fyrir alla.
Rúntuðum pínu um, fórum í sund ofl. Á heimleiðinni í gær fórum við svo Dalvík, Ólafsfjörður, Fljót og í sund á Ólafsfirði, fín laug þar líka. Buðum Úlfari frænda með í þessa útilegu og þeim kom ágætlega saman frændsystkinunum í þetta skiptið, skrítið...
Svo er verið að velta fyrir sér næsta ferðalagi ? Hvert á að fara? Held að best sé að vera heima, miðað við veðurspána, 18-25 stiga hiti næstu daga. Örugglega hægt að finna sér eitthvað að gera.. Hér eru svo nokkrar myndir úr Ásbyrgi.

Stuð í rólunni.

Mjög alvarlegur tennisleikur:-)


Klifurkötturinn hún Elín Ósk.



Alltaf jafn kátur og brosandi :-)

1 ummæli:

Heiðagella sagði...

Til hamingju með gamla kallinn ;o)

Knuz Heiðagella