13 ágúst 2008

Litli leikskólastrákurinn

Nú er sko alvara lífsins tekin við. Litli bóndinn að byrja á leikskólanum. Fórum í gær í fyrstu heimsókn og aftur í morgun. Reikna með að aðlögunin taki góða viku. Hann er rosalega sæll, vinkar öllum og brosir út að eyrum svo vonandi verður þetta ekkert mál hjá honum. Hann verður með þeim yngstu á leikskólanum, verður ein yngri. Hann er alveg skæður, stingur grjóti uppí sig, étur pöddur og ég veit ekki hvað. Þær hafa sko nóg að gera á leikskólanum að passa hann;)

Annars fer sumarfríinu að ljúka, á að mæta í vinnu á föstudag, sé til hvernig það verður með ÁSB í aðlöguninni. Er búin að hafa það nokkuð gott í sumar. Fórum norður í Árneshrepp um daginn og gistum í tvær nætur í Finnbogastaðaskóla. Alltaf gaman að koma þangað og fara í sund í Krossneslauginni sem er tær snilld ofan í fjöru.
Svo er brúðkaup hjá stórbændunum á Sölvabakka á laugardaginn og ég á ekki von á öðru en að slegið verði upp hörkuveislu í Skagabúð um kvöldið. Er búin að fá mömmu til að passa litla bóndann og Elín ætlar á Kántrýdagana með Hörpu Hlín.

Jæja best að fara að gera eitthvað af viti á bænum.

Engin ummæli: