03 janúar 2009

Gleðilegt ár

Ekki úr vegi að skella hér inn smábloggi.


Gleðilegt ár allir og takk kærlega fyrir það gamla.


Við erum hress og kát í sveitinni og höfum haft það gott í jólafríinu. Búið að borða mikið, hitta fjölskylduna og hafa það huggó eins og maður á að gera. Bumbubúinn stækkar og stækkar og nóg að gera þar. Svo er bara framundan vinna og vinna fram að páskafríi....... eða öðru fríi?


Er búin að vera dugleg að prjóna sl. vikur, var búin að setja inn mynd af vestinu hennar Elínar.
Mér finnst ég vera rosalega dugleg, hvað finnst ykkur??



Þetta er vestið hans Ásgeirs:





















Og þetta er lopapeysan hans:


4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bumbubúi hvað?????? ;) Ætlaði líka að hæla þér fyrir prjónið en þessi bumbubúa setning stal alveg senunni sko ....

Dagný Rósa sagði...

Jú jú eitt stykki bumbubúi..........

Nafnlaus sagði...

Segi það sama og Hugrún bumbubúi:O) til hamingju með það:O)
kv. Elva Dröfn

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt ár!
Til hamingju með bumbubúann :) Hvenær á hann að koma í heiminn?
Kv. Vigga og bumbubúinn :)