19 janúar 2009

Helgin kom og helgin fór

Notaði helgina til að hvíla mig eftir 2 ferðir til RVK í síðustu viku. Alltaf gaman í borginni, fór í skólann, er að byrja í tveimur skemmtilegum stærðfræðikúrsum. Hlakka til.

Tölvan er eitthvað að stríða okkur, einhver vírus, þarf að láta kíkja á hana við tækifæri.

Sit annars og les námsbækur eða við að prjóna. Finnst reyndar skemmtilegra að prjóna.

1 ummæli:

Frú Sigurbjörg sagði...

Til hamingju með daginn Dagný!
Ætla að bíða með hamingjuóskir fyrir bumbubúann, þar til hann/hún verður komin/n heil/l á húfi. Hvenær er annars von á honum/henni?
Var að skoða allar skemmtilegu myndirnar þínar. Verður gaman að fylgjast með þér hér: )
Kær kv. frá Kötlu einu sinni pennavinkonu.