Litli kútur dafnar vel og er vær og góður. Hann verður væntanlega skírður 30. eða 31. maí. Ætlum að slá saman skírninni og 2 ára afmæli Ásgeirs - spara bakstur og veisluhöld ;-)
Ásgeir er að farast í sjálfstæðisbaráttunni sinni,vill gera allt sjálfur, meira að segja keyra bílinn til að fara í leikskólann ! Einum of duglegur suma dagana. Honum finnst æði að fara í fjárhúsin og sjá lömbin, en bara þau hvítu. honum finnst mislitu ljót.
Svo er alveg að koma sumarfrí í skólanum hjá Elínu, skólaslit eru 27. maí.
Hér eru svo myndir af afkvæmunum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli