28 júní 2009

Sumarið er tíminn....

...segir í laginu hans Bubba og ég er ekki frá því að það sé barasta rétt.
Allt að gerast þetta vorið - eða þannig sko.

Búið að skíra drenginn og fékk hann nafnið Andri Snær. Hann er ósköp vær og góður, farinn að "spjalla" og brosir út í eitt ;)
Ásgeir varð 2 ára þann 30. maí og notuðum við tækifærið og skírðum Andra sama dag og vorum því með sameiginlega veislu fyrir fjölskylduna. Skírnin fór fram í Höskuldsstaðakirkju og hún Ursula Árnadóttir presturinn okkar sá um skírnina. Ljómandi fín athöfn og hún Elín Ósk okkar spilaði tvö lög á trompetið - rosalega fallegt hjá henni.

Núna er nóg að gera í sveitinni, girðingavinna og fara að keyra á fjall - reyna að klára það í vikunni ;) Mikið vildi ég að við gætum barasta sleppt þeim beint upp en þær myndu bara hanga hér fyrir ofan allt sumarið.

Elín er farin í "frí" til Sveins og Úlfars í nokkra daga og mér finnst ósköp tómlegt hér þegar hún er ekki og bara litlu drengirnir tveir, að ég tali nú ekki um þegar þeir báðir sofa ;)



Svo er stefnan á að gera eitthvað skemmtilegt næstu vikurnar; klára heyskap, þrífa í húsunum, hugsa um hús og garð og gera eitthvað skemmtilegt með familíunni. Ætlum í bústað í Ölfusborgum um miðjan ágúst í ca. viku...........





















2 ummæli:

Frú Sigurbjörg sagði...

Myndarhópur sem þú átt!

Dagný Rósa sagði...

Takk,takk...