Sæl öll og gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
Helstu fréttirnar úr sveitinni eru þær að mín er bara byrjuð að kenna aftur, sælunni lokið sem húsmóðir í fæðingarorlofi og bóndinn tekinn við því hlutverkinu :-)
Fór í vinnuna á föstudaginn og byrjaði svo að kenna í dag. Játa að það eru töluverð viðbrigði.
Er ekki best að líta yfir síðasta ár og fara yfir helstu atriðin.
Janúar:
Kellan átti afmæli, 31. árs.
Febrúar:
Get bara ómögulega munað hvað gerðist hér markvert í þessum mánuði.....
Mars:
Dekurferð með öðrum kvinnum í borg óttans, Tinu Turner show, SPA dekur, búðarráp og fleira.
Árshátíð í skólanum og stórafmæli hjá Helgu Ólínu.
Apríl:
Hætti að vinna þann 13. og fór í veikindaleyfi.
Yfir 20°C hiti síðasta dag aprílmánaðar, man varla aðra eins veðurblíðu í sumarbyrjun.
Elín fór í skólaferð í Vestursýsluna, selasetrið og fleira.
Maí:
Sauðburður á fullu, reyndi að skipta mér af eins og ég gat, aðstoða í húsunum og klappa lömbunum. Í lok sauðburðar fæddist svo stór og myndarlegur prins, gekk eins og í sögu. Er ekki spurning um að hafa bara einn álagstíma, gafst mjög vel.
Júní:
Smelltum okkur til höfuðborgarinnar í smábúðarleiðangur og heimsóknir.
Annars var bara verið að njóta lífsins og hugsa um nýja fjölskyldumeðliminn.
Júlí:
Prinsinn skírður Ásgeir Sigmar.
Fórum í tvær bústaðaferðir: Kjarnaskógur og Stóru-Skógar í Borgarfirði, svaka næs.
Heyskap rumpað af á nokkrum dögum.
Ágúst:
Bóndinn 41 árs.
Fórum til Akureyrar í búðarleiðangur, skóladót og fleira.
Þrítugsafmæli hjá Svenna bróðir, matarveisla og fínheit þann 31.
September:
Heimasætan 7 ára og haldið upp á það bæði hér heima fyrir fjölskylduna og svo í félagsmiðstöðinni fyrir krakkana í skólanum.
Göngur og réttir eins og alltaf.
Skólaakstur......
Október:
Lítið markvert gerðist hér, sá um skólaakstur og aftur skólaakstur.
Nóvember:
Þessi mánuður leið hægt og rólega, jólaföndur, jólabakstur, jólagjafainnkaup.......
Pabbi og mamma áttu afmæli 7. og 8. og fórum við í kaffi þangað.
Tómas bróðir varð 15 ára þann 26. og fórum við aftur í kaffi.
Ég fer helst ekki í heimsókn nema að fá kaffi og kökur :-)
Desember:
Jólin komu með rólegheitum, ekkert stress hér á bæ.
Vorum heima á aðfangadag, hangikét á jóladag og kalkúni á gamlársdag á Sauðárkróki.
Manni leið eins og á stríðssvæði á gamlársdag, svo miklu var skotið upp.
Hittum fjölskylduna og áttum notalegar stundir.
Þetta var árið 2007 í stuttu máli, hef örugglega gleymt einhverju og þá skrifast það á hlaupna heilann minn, held að hann hafi minnkað um 20 % eftir fæðinguna, ég man varla neitt og verð að skrifa allt hjá mér, spurning um Alzheimer.......
Hafið það svo gott, óverendát...................
07 janúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hey, þú gleymdir að segja mér að þú værir farin að vinna aftur, áðan í símanum, ekki það að við hefðum blaðrað í klukkutíma ha?? eða var það kanski að ég blaðraði svona mikið......
njóttu þess að fara í vinnuna, það er þá bara skemmtilegra að koma heim..
knuz í kotið
uppáhaldssystirin >o)
Ég komst bara ekki að........ þú með munnræpu
Skrifa ummæli