11 janúar 2008

Matartímar

Ein helsta nauðsyn okkar er matur. Oft vill nú eitthvað ganga á í matartímum, sérstaklega þar sem börn eru. Hér eru matartímarnir örugglega ekkert frábrugðnir þeim hjá öðru fjölskyldufólki, þótt við reynum að hafa þetta á rólegu nótunum.


Yngsti fjölskyldumeðlimurinn er orðinn þokkalega duglegur að borða og finnst gaman að borða. Hann fékk í sumar skeið með flugvél á og blessunin gefur frá sér hljóð. Honum finnst þetta stórmerkilegt og vill helst alltaf rífa í skeiðina, sem er nú ekki alveg það sem við viljum. Þess vegna er hún nú ekki oft notuð, annars gengju matartímarnir útá slagsmál um skeiðina. Rakst svo á þessa ljómandi mynd í morgun og smelli henni hér inná, líka í ljósi þess að nú er Doddi í fæðingarorlofi og ætli eitthvað gangi ekki á í morgunmatnum, mætti segja mér það.



Fyrsta vinnuvikan að baki á nýju ári og leggst þetta rosavel í mig, er að kenna heimilisfræði í 1.-7. bekk, ætti að geta komist skammlaust frá því.

Hafið það annars gott um helgina, ætla að hafa það rólegt með da familí...





















Engin ummæli: