Krakkarnir á Skagaströnd og nágrenni eru auðvitað snillingar eins og við vitum öll :-)
Þau voru tilnefnd sem Norðvestlendingar ársins 2007 af Feyki og fór kosning fram á Húnanum og Skagafjörður.com. Auðvitað rústuðu krakkarnir þessu og fengu viðurkenninguna afhenta á föstudaginn fyrir viku. En maður mátti auðvitað ekki segja frá til að skúbba ekki fréttinni fyrir Feyki sem kom út í gær. TIL HAMINGJU KRAKKAR. Allir að kaupa Feyki...........................................
Hef það annars ansi ljúft í dag, er ekki að vinna á föstudögum sko. Færði kallinum kaffi, súkkulaði og ristað brauð í rúmið í morgun, enda bóndadagur. Verð að vera góð við kallana mína í dag........ TIL HAMINGJU MEÐ BÓNDADAGINN.
Átti afmæli á mánudag og var svona nokkurn veginn búin að ná mér eftir veikindin um síðustu helgi. Sletti í marens og mmmmmmmmmmmmm................................
Svo aðalfréttir vikunnar:
Ég fékk lítinn frænda 22.jan (næstum í afmælisgjöf), hann er svakalega sætur. TIL HAMINGJU Sandra, Hreiðar og Dagmar. Fór að velta fyrir mér: langt síðan Ásgeir var svona lítill.........
Heiða pantaði flug til Íslands og kemur 13. febrúar með drekana tvo. Hlökkum ekkert smá til, enda hafa þau ekki verið hér á landi síðan í maí 2006 og kominn tími til.....
Plan helgarinnar:
Borða þorramat í kvöld, slaka á með dafamilí um helgina, þrífa, þvo þvott og svo eitthvað fleira tilfallandi.
Hafið það gott.........
25 janúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
ohhhhh við hlökkum líka til ;o)
knuz Heiðagella
Skrifa ummæli