Þá er komið að átdögunum miklu og eru þeir frekar snemma í ár, mmmmmmm.......
Búið að baka bollurnar á þessu heimili og ætli það verði ekki 1. í bollum í dag og 2. í bollum á morgun, þar sem ég kem nú frekar snemma heim. Svo verða örugglega kjötbollur eða fiskibollur í kvöldmatinn. Þá verða baunir lagðar í bleyti og svo er saltkjöt og baunir á þriðjudag, mmmmmmmmm, elska baunir með lauk og beikoni. Ekki eru nú allir á heimilinu áfjáðir í þessar baunir en ætla að prófa þær á drengnum, honum finnst allt gott.
Svo er það martröðin öskudagur og ætlum við að reyna að búa til sjónvarp, gangi okkur vel....... Náttfatadagur í skólanum um morguninn og svo er grímuball um kvöldið.
Er farin að hlakka til að hitta Baunana sem birtast hér á klakanum þann 13. og koma væntanlega norður þann 14. hef ekki séð þau síðan í maí 2006.....
Fyrsta alvöru vetrarskotið kom núna fyrir helgina og fórum við ekki í skólann á fimmtudaginn fyrr en rétt fyrir 10, sökum þess hve blint var. Ætla sko ekki að taka neina áhættu og ana út í einhverja vitleysu. Núna hinsvegar er blíða, sólin skín og smá frost, fallegt gluggaveður.
Þetta er svona hálfgerður fréttapistill, hef svosem lítið annað að segja.
DRÚ
03 febrúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
hva!!! bara nýtt lúkk og alles..
Við hlökkum líka til ;o)
Skrifa ummæli