09 febrúar 2008

Rokrassgatið Ísland

Er að verða frekar þreytt á þessu roki endalaust. Í gærkvöld og nótt átti að koma hér dýpsta lægð sem komið hefur í langan tíma. Og það var hvasst, mammamía. Herbergið okkar snýr á móti suðri og ég þorði ekki að sofa þar inni með Ásgeir í nótt, það heyrðist svo svakalega mikið á glugganum. Þannig að við flúðum á dýnur inn til Elínar. Ásgeir var svo sæll og glaður þegar hann vaknaði kl. 7 í morgun og sá hvar hann var, á forboðna staðnum. Ég hins vegar er ekki alveg jafn morgunhress og hann, frekar illa sofin eftir nóttina.

Vonandi fer þessum rokkafla að ljúka, það er alltaf rok :-(

Annars er planið svipað og aðrar helgar, slaka á, leika við börnin, taka til, elda góðan mat osfrv. Held reyndar að ég neyðist til að fara í búð í dag eða á morgun.

Hafið það svo gott um helgina.

Engin ummæli: