Enn ein helgin að renna í garð og lítið á dagskrá þessa helgina, annað en hreppsnefndarfundur á morgun og saumó á sunnudag.
Ungfrúin búin að vera meira og minna veik í 2 vikur og alla þessa vikuna heima með streptókokka og eyrnabólgu. Ég meina, barn sem verður sjaldan veikt, tekur þetta með stæl núna. Svo er frí hjá henni á morgun og mánudag í skólanum.
Ég skráði mig í viðbótarnám í stærðfræði á vegum MRN og er að fara um næstu helgi suður og byrja. Hlakka til.
Heiða systir og grísirnir búin að vera hérna fyrir norðan, gistu hjá okkur síðasta fimmtudag og Karítas Kristel fór í skólann með Elínu um morguninn og fór í heimsókn í 7.-10. bekk og var að spjalla við krakkana á dönsku. Allir höfðu nú gaman af því. Svo eru þau fyrir sunnan núna og fara til DK á mánudag :-(
Jæja fleira ekkert sniðugt héðan úr sveitinni
21 febrúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli