03 mars 2008

Komin með ADSL :-) :-)

Já loksins, loksins komst þetta ADSL samband á hér í sveitinni. Það er búið að taka símakallana 5 vikur að breyta í símstöðinni og taka ISDN+ sambandið hér af. Var við það að verða geðveik og gráhærð á þessum seinagangi. En JIBBÍ JEI. Og allar síðurnar sem eru svo lengi að hlaðast inn eins og bankarnir, mbl og vísir, þetta er barnaleikur núna.

Og svo fjölgar alltaf sjónvarpsrásunum, frétti nefnilega um daginn að hér væri hægt að ná Discovery, ÍNN og Cartoon Network. Stillti þær inn og þá eru stöðvarnar orðnar 10. Já takk fyrir, gerist varla betra. Þarf ekki að kvarta lengur yfir afþreyingarleysi hér á bæ.

Litli gaurinn er við það að fara að skríða, hann mjakar sér á maganum og lyftir sér upp á hnén en vantar ennþá tæknina til að hreyfa saman hendur og fætur. Nú fyrst fer hann að komast um og búið að leggja göngugrindinni, enda alltof mikil fart á honum í henni.

Ég er byrjuð í námi og fór í Kennó um helgina á fyrsta námskeiðið. Fer í 15 ein. viðbótarnám í stærðfræði og hlakka til þegar þetta byrjar af alvöru í haust. Fórum til Rvk. á fimmtudag í fýluveðri og gistum á hótel Smára og Örnu. Takk fyrir okkur. Komum svo heim á laugardagskvöldið í hálku og ég að farast úr bílhræðslu. Er orðin ennþá bílhræddari eftir að ég sá Dodda fara eina veltu um daginn á Kíunni. En hvað um það, við komumst heil heim.

Jæja, meira bull er ekki til í bili.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ og til hamingju að vera byrjuð í stærðfræðinni :) Alltaf gaman að læra eitthvað meira. En í guðs bænum geturu ekki bara bundið þennan mann þinn niður, hvað á það að þýða að vera veltandi um og hvað þá fyrir framan augun á þér? Mjög fegin því að það er snjólaust hér í Stokkhólmi og ekki vanalegt að strætóbílstjórarnir taki upp á því að velta:) Vonandi hafið það sem best, hlakka til að sjá guttann ætli hann verði ekki farinn að labba næst þegar ég sé hann?

knús í kotið
Rósa

Dagný Rósa sagði...

Takk Rósa fyrir innlitið.
Það er svona þegar skurðirnir eru að stríða manni, erfitt að halda sig á veginum. Jú, ætli Ásgeir verði ekki kominn á fullt næst þegar við sjáumst.
Kv.Dagný