08 mars 2008

Vika í páskafríið...

...og ég get ekki beðið, fæ þá kannski að sofa lengur en til 6:00/6.30. Litla vekjaraklukkan á heimilinu bregst ekki frekar en fyrri daginn. Hann fór reyndar ekki að sofa fyrr en 22 í gærkveldi og vaknaði kl 7 í morgun, þetta er eins og að sofa út................

Fór í annars skemmtilegt samkvæmi í gær og vann ekki vínpott mánaðarins, það hlýtur að koma að mér næst.................

Bauð da familí í kaffi í dag og á eftir að skella í 2 kökur, fer nú létt með það..............

Annars er lítið að gerast í sveitinni.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Úff svo er ég að kvarta að mín vakni hálf sjö - sjö ... En á laugadagsmorguninn afrekaði hún að sofa til 9:15 og þegar hún vaknaði fannst mér eins og ég hefði náð 12 tíma svefni .. algjör lúxus :)

Heiðagella sagði...

Veistu, ég hef NÁKVÆMLEGA enga samúð með þér að þurfa að vakna snemma, í versta falli geturðu sparkað Doddanum fram úr... Ekkkkkkert væl, það drífur mann ekkert langt, þú getur bara farið að skúra snemma á laugardagsmorgnum, ég geri það allavega ef börnin vakna fyrir 6.. heheh (kanski ekki skúra, en fer út að leika )
kossar úr DK
Heiðagella

Dagný Rósa sagði...

-Hugrún:ég veit, þetta var lúxus, alveg þangað til hann byrjaði á þessu morgunbrölti.

-Heiðagella: já, skúra, skrúbba og bóna snemma dags. Svo er bara að fara fyrr að sofa, þetta eru bara viðbrigði, því EÓB var EKKI svona morgunhress.