Komið páskafrí og hið margumrædda páskahret að hrella landsmenn, amk íbúa hér norðanlands. Það hefur reyndar verið gott veður undanfarna daga, amk svo gott að ég þorði að fara til Akureyrar. Það þarf að vera ekstra gott veður og hálkulaust svo ég setjist upp í bíl og fari eitthvert með börnum og manni. Smelltum okkur semsagt á þriðjudaginn á Akureyri, slæptumst, versluðum ofl. Alltaf gaman á Akureyri. Hittum mömmu, Tómas, Svenna, Marie og Úlfar.
Fórum svo á Reykjaströndina eftir Ak. ferðina og skildum prinsessuna eftir. Amman var búin að lofa því að hún og Úlfar mættu gista þegar þau kæmust í páskafrí. Svo núna er hún í útilegu hjá ömmu, ætli við sækjum hana ekki á morgun, ef veður leyfir.
Hef annars haft það gott síðustu daga, lítið að frétta, lítið að gerast. Maður reynir þó að fylgjast með fréttum hér í nágrenninu, s.s. innbrotum, hraðakstri og fl. Ég velti reyndar fyrir mér hvers vegna í ósköpunum lögreglan var að elta mann sem var grunaður um ölvun. Þeir fóru víst á um 150 km/klst. Hvað ef eitthvað alvarlegt hefði nú gerst, t.d. hann hefði ekið á aðra vegfarendur, slasað þá eða sig alvarlega, ég tala nú ekki um dauðaslys. Hver ber ábyrgðina á því? Held að löggan hér hefði aðeins mátt hugsa þetta nánar, er ekki alveg sátt við þetta.
Svo er það gengið, hvert ætlar þetta eiginlega allt saman. Danska komin yfir 16 krónur og aumingja Heiða sys í DK og svosem allir námsmenn, námslánin verða að engu. Á varla von á að þetta lækki á næstunni , eins gott að vera ekki búin að plana neinar utanlandsferðir þetta árið.Er ekki gott að enda þetta á sætustu börnunum úti í snjónum í síðustu viku.
Hafið það gott um páskana.
GLEÐILEGA PÁSKA
2 ummæli:
Sæl fröken, við námsmennirnir höfum það ekki slæmt:) Allavega ekki ég þar sem námslánin mín eru reiknuð í sænskum krónum en ekki íslenskum. Þannig ég fæ alltaf jafn margar sænskar krónur borgaðar frá elskulegum hjá LÍN. En aftur á móti er þetta slæmt að því leiti að lánin verða bara stærri og meiri þegar maður þarf að borga af þeim..... Las líka skemmtilegt blogg hjá einum hérna úti, hann sagði (eftir óvísindalega könnun) að þó að krónan væri búin að veikjast er matarverðið hér þó ennþá um 30-40% ódýrara en heima:) Þannig held ég geti ekki kvartað mikið í bili.
En gleðilega páska, vona að löggan hugsi sinn gang áður en þeir fara að elta (ýta undir hraðakstur) svona bjána.
kv
Rósa
Skrifa ummæli